Jarðvinna logo

Við byggjum framtíðina, eina skóflustungu í einu.|

Þjónusta að þínum þörfum

Kranabílar

Við bjóðum upp á öfluga og vel útbúna kranabíla sem henta fyrir fjölbreytt verkefni. Bílarnir eru búnir öllum helstu aukabúnaði, þar á meðal grabbum í mismunandi stærðum, brettagöflum, herðartré og mannkörfu. Hvort sem um ræðir flutning, lyftingu eða aðra kranaþjónustu, tryggjum við örugga og skilvirka lausn.

Sjá meira

Byggingarframkvæmdir

Við höfum áratuga reynslu af jarðvinnu við byggingarframkvæmdir. Við tökum að okkur alla jarðvinnu tengt byggingarframkvæmdum frá húsagrunnum og sökklum til stærri og flóknari jarðvinnuframkvæmda. Með öflugum tækjabúnaði og reyndu teymi tryggjum við nákvæm vinnubrögð og traustan grunn fyrir hvers kyns byggingarverkefnum.

Sjá meira

Lagnir & veitur

Við höfum víðtæka reynslu af lagnaframkvæmdum. Við sinnum lögnum fyrir rafmagn, ljósleiðara, fráveitu, heitt og kalt vatn – allt í nánu samstarfi við helstu veitufyrirtæki landsins. Verkefnin eru unnin af nákvæmni og í samræmi við strangar öryggis- og gæðakröfur.

Sjá meira

Yfirborðs & lóðafrágangur

Við hjá Jardvinna.is bjóðum upp á vandaðan yfirborðs- og lóðafrágang fyrir einstaklinga, fyrirtæki og opinbera aðila. Með víðtæka reynslu og trausta þekkingu sinnum við öllum verkum af fagmennsku – hvort sem er að ræða hellulögn, malbikun, grjótröðun eða lóðafrágang.

Sjá meira

Snjómokstur & Söltun

Við bjóðum upp á öflugt tækjabúnað og áreiðanlega þjónustu í snjómokstri og söltun. Með vörubílum með snjótönn og hjólavélum með stórum snjóskóflum sinnum við öllum verkefnum – allt frá stofnbrautum og götum niður í bílaplön og stíga. Við leggjum áherslu á skjót viðbrögð, örugg vinnubrögð og gott aðgengi í öllum aðstæðum.

Sjá meira

Um Jarðvinna.is

Jarðvinna.is er framsækið og metnaðarfullt þekkingar og þjónustu fyrirtæki í  jarðvinnu. Hjá fyrirtækinu starfar góð liðsheild þar sem menn eru sérfræðingar á sínu sviði. Stjórnendur Jardvinna.is eru með áralanga reynslu af því að stýra stórum framkvæmdum.

Í Jardvinna.is leggjum við upp með góðri þjónustu, skila af okkur verkefnum á réttum tíma og með okkar frábæra starfsfólki og reynslu sem það býr yfir getum við unnið flókin um umfangsmikil verkefni hratt og örugglega. Jardvinna.is byggir á mannskap sem hefur stafað saman í árabil, bíður upp á góðan og öflugan tækjakost.

Fyrri verkefni

Við höfum tekið þátt í fjölbreyttum verkefnum víðs vegar um landið. Hér má sjá brot af þeim verkum sem við höfum unnið að í gegnum árin – allt frá minni framkvæmdaþátttöku yfir í stærri jarðvinnuverktaka. Öryggi, fagmennska og nákvæm vinnubrögð eru ávallt í fyrirrúmi.

Við höfum reynslu sem skilar árangri & skýra framtíðarsýn.

Markmið

Markmið okkar er að veita faglega og áreiðanlega þjónustu í jarðvinnu, þar sem gæði, öryggi og traust samskipti við viðskiptavini eru í fyrirrúmi. Við leggjum metnað í að skila hverju verkefni af nákvæmni og á réttum tíma.

Reynsla

Jarðvinna.is býr yfir áratuga reynslu í jarðvinnu og hefur tekið þátt í fjölmörgum umfangsmiklum verkefnum um allt land. Við höfum unnið með stærstu fyrirtækjum landsins og fjölmörgum bæjarfélögum, sem endurspeglar bæði fagmennsku okkar og traustið sem okkur er sýnt.

Afhverju að velja okkur?

Með reynslu, sérþekkingu og öflugan tækjabúnað tryggjum við faglega framkvæmd frá upphafi til enda. Við stöndum við gefin loforð, vinnum hratt og örugglega – og leggjum áherslu á gott samstarf við viðskiptavini okkar.

01

Áralöng reynsla og þekking

Við búum yfir áratugum af þekkingu og reynslu við íslenskar aðstæður.

02

Fagmennska

Hjá okkur starfa hópur af fagmönnum sem eru sérfæðingar á sínu sviði.

03

Frágangur

Við tryggjum að allur frágangur sé til fyrirmyndar.

04

Hágæða búnaður

Við erum með hágæða vélar og tæki til að sigrast á öllum verkefnum.

Hafðu samband

Hringdu, sendu póst eða fylltu út formið og við svörum við fyrsta tækifæri.